Góðar hugmyndir skapa góðan bíl. Ef þú spyrð bílahönnuð, þá jafnast ekkert á við að fá tækifæri til að hanna bíl alveg frá grunni.
Þannig lögðu framleiðendur Spark upp verkefnið. Hönnuðir Spark fengu fyrirmæli um að endurmeta viðtekin gildi og væntingar og nálgast hlutina frá alveg nýju sjónarhorni. Þeir létu ekki segja sér það tvisvar, gáfu sköpunargleðinni lausan tauminn og útkoman er skynsamlegasti og skemmtilegasti smábíll seinni tíma; Chevrolet Spark. |